Þegar þú býrð til gististað í Travia þá þarftu að setja upp herbergi.
Farðu í Rooms og smelltu á Add Room. Hérna skráir þú nánari upplýsingar um hvert herbergi sem þú býður upp á.

Undir Basic Settings fyllir þú út í hvaða tegund herbergið er, týpuna, nafnið, hversu mörg herbergi eru til af þessari gerð, hámark gesta, mögulega rúm valkosti.

Undir Additional Settings bætir þú við stuttri lýsingu á herberginu og skráir stærð herbergisins í fermetrum.
- Tengdu herbergið með því að slá inn Room ID úr Channel Manager. Ef þér tókst að tengja gististaðinn við PMS-kerfið þitt þegar þú stofnaðir gististaðinn birtist listi yfir tengd herbergi.
- Sláðu inn Property Key aðeins ef herbergið er ekki undir sama Channel Manager. Í því tilviki skaltu slá inn Property Key gististaðarins sem herbergið var stofnað undir.
- Sláðu inn vöruauðkenni herbergisins úr bókhaldskerfinu þínu í Product code.
- Ef herbergið er í boði allt árið skaltu velja Whole Year Availability. Annars skaltu skrá opnunardagsetningar.

Undir Rate Plan Identifiers getur þú séð hvaða rate codes eru tengd herberginu. Þessi hluti er aðeins til yfirlits og ekki hægt að breyta honum hér.
Til að bæta við eða breyta rate codes skaltu fara í valmyndina Rate codes.

Í Room Add-ons geturðu valið hvaða vörur eða þjónusta eru í boði fyrir herbergistegundina.
Þessar vörur þarf fyrst að stofna undir Property Products áður en hægt er að velja þær hér. Síðan geturðu merkt þær sem tiltækar, skráð Max Quantity og valið hvort þær séu Mandatory.
Til að hægt sé að bóka þær þarf einnig að bæta þeim við viðeigandi verðsamning undir Seasons & Prices.

Undir Room Amenities er hægt að haka við þá hluti sem eru í boði í herberginu. Þeim skipt í flokka eins og baðherbergi, eldhús, svefnherbergi og stofu.
Hakaðu við þá hluti sem er að finna í herberginu. Til dæmis geturðu merkt við hvort herbergið sé með hárblásara, sér baðherbergi, ísskáp eða sjónvarp.
Þú getur líka smellt á Copy amenities from til að afrita hluti úr öðru herbergi í stað þess að velja hana handvirkt ef aðstaðan er sú sama í fleiri herbergjum.

Undir Room Photos hleðurðu upp myndum af herberginu.
Þegar herbergið er tilbúið skaltu smella á Save Room.

Næsta Skref - Afbókunarskilmálar
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina