Nánari upplýsingar

Breytt Fri, 17 Apr kl 3:15 PM

Smelltu á Detailed information.


Á þessari síðu þarftu að fylla út ítarlegri upplýsingar um gististaðinn þinn. Þessar upplýsingar birtast ferðaskrifstofum í Travia.

 

  1. Skrifaðu stutta og hnitmiðaða lýsingu á gististaðnum undir Short description.
  2. Smelltu á Amenities. Þar getur þú valið um það sem er innifalið á gististaðnum þínum. 
  3. Settu inn Check-in og Check-out tíma. Hakaðu við Allow same-day bookings ef þú leyfir samdægursbókanir. 
  4. Þú getur einnig valið Self Check In option og tilgreint hvort gististaðurinn sé Self Check-in only eða Self Check-in possible.



Ef þú vilt bæta við öðrum vörum eða þjónustu sem eru í boði á gististaðnum geturðu gert það síðar undir Property Products.  


Undir Tax Settings geturðu stýrt því hvernig gistináttaskattur er notaður á gististaðnum þínum. Gistináttaskatturinn er lagður á hvert herbergi fyrir hverja gistinótt. 


  1. Til að virkja þessa stillingu skaltu haka við Lodging Tax Feature Enabled.
  2. Eftir að stillingin hefur verið virkjuð geturðu skilgreint dagsetningabil. Þú getur einnig bætt við fleiri tímabilum með því að smella á + táknið. Þannig geturðu haft mismunandi skattstillingar fyrir mismunandi dagsetningabil.
  3. Undir Lodging tax in price velurðu hvort skatturinn sé Excluded eða Included í herbergisverðinu. Ef Excluded er valið leggst skatturinn ofan á herbergisverðið. Ef Included er valið er skatturinn þegar innifalinn í herbergisverðinu.
  4. Einnig er valkostur sem heitir I want my tax sent in a separate line in the PMS/CM. Ef hann er virkjaður verður skatturinn sendur sem sér lína í PMS eða Channel Manager.
  5. Undir Lodging tax provider indentifier slærðu inn vöruauðkenni sem er notað í bókhaldslegum tilgangi í PMS eða Channel Manager. Þetta er notað til að tryggja að gistináttaskatturinn sé skráður rétt í kerfinu þínu.
  6. Þegar þú hefur lokið breytingunum skaltu smella á Save.




Undir Property Photos geturðu hlaðið upp logo gististaðarins og myndum af gististaðnum. Þessar myndir hjálpa til við að kynna gististaðinn betur í Travia.




Undir Age Group Configuration geturðu virkjað aldurshópa ef gististaðurinn notar mismunandi verðlagningu fyrir börn eftir aldri. Þegar stillingin er virkjuð verður sjálfgefinn aldurshópur fyrir ungbörn búinn til sjálfkrafa.

Ef þörf er á skaltu smella á Custom Age Groups Enabled til að búa til nýjan aldurshóp og síðan á Save til að vista breytingarnar.



Þú getur síðan skilgreint aldursbil fyrir börn og notað þau síðar við verðlagningu í Seasons & Prices


Nánari upplýsingar um Age Group Configuration má finna í sér hjálpargrein um Age Groups. 


Næsta skref - Herbergi







Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina