Senda hópa allotment tilboð

Breytt Thu, 5 Nóv kl 4:34 PM

Travia gerir þér kleift að bjóða blokkbókun (Allotment) tilboð á ferðaskrifstofur fyrir einn eða fleiri hópa sem ferðast á mismunandi dagsetningum. Ólíkt FIT Allotment seturðu fyrst upp heiti hópanna, dagsetningar og dvalarlengd og velur síðan gististað og fjölda herbergja.


1. Veldu Property allotments í aðalvalmyndinni og smelltu síðan á Offer new allotment.


2. Veldu Group Allotment.


3. Í Basic Info velurðu hvaða ferðaskrifstofa fær tilboðið og velur nafn á hópinn (Travel Agent og Allotment name). Hérna getur þú einnig valið hversu margir hópar þetta eiga að vera (Number of Groups). 


4. Í Number of Stops skaltu fylla út upplýsingar fyrir hvern hóp:

  • Name - Sláðu inn heiti hópsins.

  • Start Date - Veldu komudag hópsins.

  • Number of Days - Sláðu inn dvalarlengd hópsins.

5. Endurtaktu fyrir hvern hóp og smelltu síðan á Continue.

6. Í Properties velurðu gististaðinn sem tilboðið á við. Farðu yfir dagsetningar hvers hóps og sláðu inn fjölda herbergja sem þú býður í hverjum herbergjaflokki. Smelltu á Continue.


7. Stilltu valkostina fyrir Auto Release. Ýttu á Save.

  • Group Release - Þau herbergi sem ferðaskrifstofan hefur ekki notað, munu þá opnast einn dag í einu.
  • Whole Allotment - Þá opnast fyrir öll herbergin yfir allt tímabilið sem allotmentið nær yfir.


8. Næst þarftu að stilla og tengja hvern hóp fyrir sig. Smelltu á punktana þrjá hægra megin við Allotments til að opna hana. Þar finnurðu Details, Room mappings og Settings & Rules.

9. Í Room mappings velurðu Synchronization Type og setur upp herbergin sem þú býður. Veldu Available rooms, veldu samsvarandi herbergi undir Synchronizes As og bættu við Price og Currency ef við á.

Synchronization Type ræður því hvort úthlutunin sé boðin eftir herbergjaflokki eða eftir tiltekinni herbergistegund:

  • Eftir herbergjaflokki (Per category): Þú býður ákveðinn fjölda herbergja í einum flokki, til dæmis 10 Standard-herbergi. Ferðaskrifstofan getur bókað hvaða herbergistegund sem er innan flokksins, svo sem Standard Double eða Standard Single. Hægt er að bjóða fleiri en eina herbergistegund í flokknum, en aðeins er hægt að samstilla eina þeirra, svo vörpunin er ekki eins nákvæm.

  • Eftir herbergistegund (Per room): Þú tilgreinir fjölda fyrir hverja tiltekna herbergistegund, þannig að hver tegund er boðin og samstillt sérstaklega. Notaðu plús-hnappinn til að fjölga herbergjum og græna plúsinn fyrir ofan til að bæta við annarri herbergistegund. Veldu þennan valkost ef þú vilt stjórna fjölda herbergja fyrir hverja tegund og samstilla fleiri tegundir með réttum hætti.


10. Í Settings & Rules velurðu verðlistann (Price Agreement) og afbókunarskilmála (Cancellation Policy) sem mun gilda á þessu allotmenti. Bætir við afslátt (Discount %) ef við á og stillir Allotment booking status. Sú staða ákvarðar hvaða stöðu úthlutunin fær í PMS-kerfinu þínu.


11. Smelltu á Offer til að senda tilboðið fyrir hópinn. Endurtaktu síðan fyrir þá hópa sem eftir eru. 

Ferðaskrifstofunni verður tilkynnt um tilboðið og hún getur samþykkt því eða hafnað.



Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina