Setja upp NET verðlista

Breytt Wed, 3 Jún kl 4:06 PM

NET verðsamningur er verðlisti þar sem verðin sem birtast ferðaskrifstofum eru þau verð sem þær fá þegar þær bóka hjá gististaðnum þínum.


NET samningar eru oft notaðir þegar þú vilt bjóða ferðaskrifstofum upp á föst samningsverð. Þeir eru einnig notaðir þegar allotments eru í boði.


Þú getur stofnað eins marga verðsamninga og þú þarft í Travia. Til dæmis getur þú verið með einn almennan verðlista og sérstaka NET samninga fyrir valdar ferðaskrifstofur.  


1. Farðu í My Properties íá yfirlitinu vinstra megin.

2. Smelltu á gististaðinn sem þú vilt uppfæra. Þá opnast upplýsingasíða gististaðarins.

3. Veldu flipann Seasons & Prices.

4. Hér getur þú annaðhvort breytt núverandi verðsamningi eða stofnað nýjan verðsamning.

- Til að breyta núverandi verðsamningi skaltu smella á þrjá punktana hægra megin við verðsamninginn og velja Edit.

- Til að stofna nýjan verðsamning skaltu smella á Add Price Agreement.



Veldu hvernig verðin eiga að vera reiknuð. Travia mun biðja þig um að velja hvernig verðin eiga að vera sett upp fyrir þennan verðsamning. Þú getur byggt verðin á fjölda fullorðna, herbergja og/eða fjölda nótta.  


Þú getur einnig sameinað þessa valkosti, eftir því hvernig verðuppsetningin þín er byggð upp. Til dæmis gætir þú viljað að verðin breytist eftir nýtingu, lengd dvalar eða fjölda bókaðra herbergja.


 

Næst þarftu að velja verðið er háð árstíðum eða ekki. Veldu Yes ef verðin þín breytast eftir árstíðum.

 Ef þú velur Yes getur þú:

  • valið núverandi árstíðasniðmát
  • valið Custom og stofnað þín eigin dagsetningabil fyrir árstíðir
  • stillt árstíðirnar áður en þú heldur áfram



Ef verðin eru þau sömu allt árið skaltu velja No. Þú getur breytt verðsamningnum síðar ef þú þarft að bæta við eða breyta árstíðum.

Smelltu á Next þegar þú hefur valið verðuppsetninguna.


1. Sláðu inn Name fyrir verðsamninginn og veldu NET.

NET þýðir að verðin sem birtast ferðaskrifstofum eru þau verð sem þær fá þegar þær gera bókun. Þetta eru umsamin samningsverð milli gististaðarins þíns og ferðaskrifstofunnar.

Þú gætir einnig séð aðrar tegundir verðsamninga:

  • GROSS - þýðir að verðin innihalda ekki þóknun. Þú þarft að skilgreina hversu mikla þóknun hver ferðaskrifstofa fær. Afslátturinn er valinn síðar þegar samstarf við ferðaskrifstofur er sett upp.
  • BAR - stendur fyrir Best Available Rate. Í þessu tilfelli sækir Travia verðin úr PMS kerfinu þínu.+

2. Skilgreindu Invoicing currency, það er gjaldmiðilinn sem þú vilt að verðin séu send í til kerfisins þíns fyrir reikningagerð. Ef enginn gjaldmiðill er valinn eru öll verð sjálfgefið send í PMS kerfið í þeim gjaldmiðli sem var valinn í flipanum Basic Information þegar gististaðurinn var stofnaður.

3. Skilgreindu dagsetningar fyrir Price List, það er tímabilið sem verðsamningurinn á að gilda. Smelltu á þrjá punktana við hliðina á verðsamningnum og veldu Edit Price List. Þá opnast nýr gluggi. Veldu dagsetningarnar og smelltu á Save.


Fyrir hvert herbergi eða vöru skaltu slá inn NET verðin í samræmi við verðuppsetninguna sem þú valdir fyrr í ferlinu.

Til dæmis, ef verðin þín fara eftir fjölda fullorðinna, getur þú sett inn mismunandi verð fyrir 1 fullorðinn. 2 fullorðna, auka fullorðna ef við á ofl. 



Ef verðsamningurinn þinn er árstíðabundinn þarftu að ganga úr skugga um að verð séu sett inn fyrir hverja árstíð. Fyrir neðan verðuppsetninguna sérðu Seasons.

Til að stofna nýja árstíð skaltu smella á Add Season og slá inn upplýsingar um árstíðina.


 

Til að breyta eða eyða árstíð skaltu færa músina yfir árstíðina. Þá birtast þrír punktar. Smelltu á punktana til að opna valmöguleikana.



Ef þú ert með nokkrar árstíðir getur þú afritað verð frá einni árstíð yfir á aðra. Notaðu Copy prices from til að velja þá árstíð sem þú vilt afrita verðin frá.


 

Þú getur notað Special Season þegar þú þarft að setja sérstök verð fyrir ákveðið tímabil innan núverandi árstíðar.

Þetta getur verið gagnlegt fyrir tímabil eins og jól, áramót, páska. almenna frídaga, viðburði eða dagsetningar mðeð mikilli eftirspurn. 


Special Season yfirskrifar venjuleg verð fyrir valið dagsetningabil. Gakktu úr skugga um að rétt verð séu sett inn fyrir sérstaka tímabilið áður en þú vistar verðsamninginn.



Fyrir hvert herbergi eða gistimöguleika getur þú valið hvernig verðið á að vera reiknað. 

Smelltu á táknið fyrir verðgerð og veldu viðeigandi valkost. Verðgerðirnar sem eru í boði eru:

  • FIXED - fast verð fyrir herbergið eða gistimöguleikann.
  • LINKED - tengir verðið við aðra verðreglu.
  • LADDER - notar þrepaskipt verð sem byggir til dæmis á nýtingu, fjölda herbergja eða lengd dvalar.



Bættu við gistitengdri þjónustu eða máltíðum.


Fyrir neðan gistiverðin getur þú sett upp viðbótarþjónustu sem tengist verðsamningnum. Þetta getur til dæmis verið aukarúm, morgunverður, máltíðir eða aðrar vörur og þjónusta gististaðarins.


Þú getur skilgreint hvort þessi þjónusta sé innifalin í verðinu eða bætist við sem aukakostnaður.


Ef þú þarft að bæta við fleiri vörum eða þjónustu fyrir gististaðinn skaltu fara í Property Products. Þegar vörunum hefur verið bætt þar við verða þær aðgengilegar þegar verðsamningurinn er settur upp.

 


Þú getur vistað vinnuna þína með því að smella á Save draft. Þá getur þú komið aftur síðar og haldið áfram að breyta verðsamningnum, svo lengi sem hann er ekki tengdur við virkt samstarf.


Þegar NET verðsamningurinn er tilbúinn skaltu smella á Save price agreement. Þá er hægt að nota verðsamninginn þegar samstarf við ferðaskrifstofur er sett upp.



F

 

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina