Svara samstarfsbeiðnum frá ferðaskrifstofum

Breytt Wed, 28 Okt kl 2:06 PM

Ferðaskrifstofur geta sent þér samstarfsbeiðni í Travia. Þegar þú færð beiðni sendir Travia þér tilkynningu í tölvupósti með hlekk þar sem þú getur skoðað beiðnina og svarað henni.


1. Til þess að svara samstarfsbeiðni frá ferðaskrifstofum, smelltu á My property contracts.

2. Smelltu á síuna Waiting for response.


Þá birtist yfirlit yfir ósvaraðar samstarfsbeiðnir frá ferðaskrifstofum.


3. Til að opna beiðni skaltu smella á Requested vinstra megin við beiðnina. Þú getur líka smellt á punktana þrjá hægra megin og valið Details.


4. Veldu þá afbókunarskilmála (Cancellation Policy) og þann verðsamning (Price Agreement) sem þú vilt tengja við ferðaskrifstofuna.

5. Stilltu hámarksfjölda herbergja sem ferðaskrifstofan getur bókað án staðfestingar frá þér í Instant Booking Limit, ef þú vilt setja slík takmörk. Ef þú setur til dæmis hámarkið við 3 herbergi og ferðaskrifstofan reynir að bóka 4, verður öll bókunin að bókunarbeiðni. Þú færð þá tilkynningu í tölvupósti og getur samþykkt eða hafnað beiðninni.

6. Í Name List Reminder Days skaltu tilgreina hversu mörgum dögum fyrir innritun Travia á að minna ferðaskrifstofuna á að senda þér nafnalista yfir alla gesti.

7. Í Default invoicee id skaltu slá inn skuldunautanúmer ferðaskrifstofunnar úr hótelkerfinu þínu svo bókanir frá henni séu skráðar á réttan viðskiptavin.

8. Ef þú virkjar Use BAR getur Travia notað verð úr rásastjóranum þínum þegar þau eru lægri en verðin í verðsamningnum þínum.

NET pricelist - Verðin í NET-verðlistanum birtast ferðaskrifstofum þegar þær bóka gistingu hjá þér í Travia.

GROSS or BAR pricelist - Þú getur veitt ferðaskrifstofum þóknun eða afslátt af verðunum þínum. Verðin sem birtast ferðaskrifstofunum taka mið af þeirri þóknun eða þeim afslætti.

9. Ef þú vilt skrifa skilaboð til ferðaskrifstofunnar skaltu smella á Messages.

10. Smelltu á Accept til að samþykkja samstarfsbeiðnina eða Reject ef þú vilt ekki eiga í samstarfi við ferðaskrifstofuna.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina