Þú getur lokað tímabundið á verðsamninga í Travia þegar þú þarft tímabundið að koma í veg fyrir að tilteknar ferðaskrifstofur eða verðsamningar geti bókað samningsverð á ákveðnu tímabili. Þetta getur verið gagnlegt á háannatíma, vegna viðburða eða á öðrum tímabilum þegar samningsverð ætti ekki að vera í boði.
1. Farðu í My Properties.
2. Opnaðu valmyndina lengst til hægri fyrir réttan gististað.
3. Smelltu á Closed contract prices.

4. Smelltu á Create closed contract price period.

Veldu hvort þú vilt loka á ferðskrifstofur eða verðlista:
Based on travel agents - veldu þær ferðaskrifstofur sem þú vilt hafa með.
Based on price agreements - veldu þá verðsamninga sem þú vilt loka tímabundið.

Þegar þú hefur lokið valinu skaltu smella á Next.
Skilgreindu Conditions details. Í þessu skrefi setur þú reglurnar fyrir tímabilið með lokuðu samningsverði.
1. Fylltu inn Closed contract price period name og Conditions Group Name.
2. Veldu viðeigandi Parameter og Operation, til dæmis dvalardagsetning, upphafsdagsetning/lokadagsetning.
3. Þegar þú hefur bætt við upplýsingunum skaltu smella á Next.

Veldu þær herbergjategundir eða vörur sem eiga að vera innifaldar í tímabilinu.
Eftir að þú hefur valið viðeigandi vörur skaltu smella á Next.

Farðu yfir uppsetninguna áður en þú vistar. Þegar þú ert sátt/ur við allt skaltu smella á Finish.

Þegar þú hefur lokið uppsetningunni verður samningsverð lokað fyrir skilgreinda viðskiptavini, vörur og dagsetningabil.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina