Í Travia geturðu stofnað eins marga verðsamninga og þú vilt. Þetta getur verið gagnlegt ef þú vilt bjóða ákveðnum ferðaskrifstofum sérverð en hafa jafnframt almennan verðlista fyrir aðrar.
Til að stofna verðlista skaltu fara í My Properties, smella á gististaðinn þinn og opna flipann Seasons & Prices. Smelltu síðan á Add Price Agreement.

Veldu hvernig þú vilt setja upp verðlagninguna. Þú getur byggt verð á fjölda fullorðinna, fjölda herbergja eða fjölda nátta. Einnig er hægt að sameina þessa valkosti. Þú ræður þessu alfarið hvernig þessu er stillt upp og hvernig verðstýringu þú notar.

Travia mun einnig spyrja þig hvort verðin eru háð árstíðum. Ef þú velur Yes þá færðu upp nokkra mismunandi sniðmáta sem þú getur brett eða þú getur sett upp eigin tímabil frá grunni með því að velja Custom og skrá tímabilin undir Configure your seasons. Smelltu síðan á Next.

Ef þú ert ekki viss á þessari stundu geturðu valið No. Þú getur alltaf breytt verðsamningnum og bætt þessum stillingum við síðar.
1. Sláðu inn nafn (Name) fyrir verðsamninginn og veldu hvort verðin séu NET, GROSS eða BAR.
NET - eru verðin sem ferðaskrifstofur sjá þegar þau bóka hjá þér í Travia
GROSS - verðin án þóknunar. Þú þarft þá að skilgreina hversu mikla þóknun/afslátt hver ferðaskrifstofa fær. Afsláttin velur þú svo seinna þegar þú ferð í samstarf við ferðaskrifstofur.
BAR - stendur fyrir Best Available Rate. Í því tilviki sækir Travia verðin úr PMS-kerfinu þínu.
2. Veldu Invoicing currency, þ.e. í hvaða gjaldmiðli verðin eiga að berast inn í kerfið þitt fyrir reikningagerð. Ef ekkert er valið verða öll verð sjálfgefið send í PMS-kerfið í þeim gjaldmiðli sem var valinn undir Basic Information þegar gististaðurinn var stofnaður.
3. Skilgreindu tímabíl verðlistans. Smelltu á punktana þrjá við hlið verðsamningsins og veldu Edit Price List. Þá opnast nýr gluggi. Veldu dagsetningarnar og smelltu á Save.


4. Fyrir hvert herbergi eða hverja vöru velurðu hvernig verðlagningin á að vera sett upp. Smelltu á verð-táknið fyrir verðtegund og veldu einn af eftirfarandi valkostum:
Fixed - stillir fast verð fyrir herbergið eða vöruna.
Linked - tengir verðið við aðra verðreglu.
Ladder - notar stigskipta verðlagningu út frá skilyrðum eins og nýtingu, fjölda herbergja eða lengd dvalar.
Til dæmis getu þú haft mismunandi verð fyrir 1 mann, bókanir með 1-15 og 16+ einingum, og dvöl í 1-2 nætur.

5. Ef verðin þín eru árstíðabundin geturðu skipt verðsamningnum upp í tímabil og haft mismunandi verð fyrir hvert þeirra. Til að bæta við nýju tímabili skaltu smella á Add season og skrá upphafs- og lokadagsetningu tímabilsins. Smelltu svo á Save.
Þú getur líka smellt á Copy prices from til að afrita verð úr öðru tímabili og síðan hækkað eða lækkað þau um ákveðna prósentu í Percentage glugganum.
Notaðu Special Season ef þú ert með sérverð fyrir ákveðin tímabil, til dæmis um jól eða páska. Þá stofnast nýtt tímabil sem yfirskrifar núverandi verð á því dagsetningabili sem þú velur.

6. Veldu hvort þú bjóðir upp á Accommodation Services eins og auka rúm og/eða morgunmat, og hvort þau séu innifalin eða í boði gegn aukagjaldi. Ef þú vilt bæta við öðrum vörum eða þjónustu sem eru í boði á gististaðnum geturðu gert það undir Property Products. Þau birtast einnig hér.

Þú getur notfært Save draft möguleikan. Þá vistast allar breytingar svo þú getir komið aftur síðar og haldið áfram, svo lengi sem verðsamningurinn er ekki tengdur virku samstarfi.
Þegar þú hefur lokið við að setja upp verðsamninginn skaltu smella á Save price agreement.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina