Senda samstarfsbeiðni til ferðaskrifstofa

Breytt Fri, 07 Jan 2022 kl 02:46 PM

Til þess að fá inn bókanir til þín á Travia þarftu að vera í samstarfi við ferðaskrifstofur. 


1. Byrjaðu á því að smella á My property cooperation


2. Smelltu á Create new cooperation

3. Veldu eignina þína and smelltu á Next


4. Hér eru allar þær ferðaskrifstofur sem eru skráðar í Travia. Hér getur þú valið þær ferðaskrifstofur sem þú vilt að geti bókað á þinn gististað. Þú getur valið að hámarki 10 ferðaskrifstofur í einu til að senda á.  


5. Ef þú vilt fara í samstarf við ferðaskrifstofu sem ekki er nú þegar í Travia, getur þú sent þeim tölvupóst og boðið þeim að skrá sig á Travia og bóka hjá þér. 



6. Smelltu á Next.


7. Þegar þú ferð í samstarf við ferðaskrifstofu, þarftu að velja afbókunarskilmála og verðlista sem hún fær hjá þér þegar hún bókar hjá þér.  Smelltu á Cancellation Policy til að velja afbókunarskilmála og smelltu á Price Agreement til að velja verðlistann. Ef þú hakar í use BAR, mun Travia sækja verðin úr hótel kerfinu þínu ef þau eru ódýrari en verðin sem eru í verðlistanum.


*Ef þú ert með NET verðlista - munu verðin sem eru skráð þar vera sýnileg hjá ferðaskrifstofum sem bóka hjá þér. 

*Ef þú ert með GROSS eða RACK verðlista - getur þú gefið afslátt í commission reitnum. Verðin sem verða sýnileg á Travia eru verðin eftir að commission hefur verið reiknað af.


8. Í Instant Booking Limit getur þú sett takmark á hversu mörg herbergi í einni bókun ferðaskrifstofan getur bókað hjá þér. Ef þú setur hámark 3 herbergi þá getur ferðaskrifstofan bókað hjá þér 3 herbergi sjálfkrafa. Ef bókunin inniheldur fleiri en 3 herbergi breytist öll bókunin í beiðni. Þú færð svo tölvupóst þar sem þú getur samþykkt eða neitað bókuninni. 


9. Í Name list Reminder Days getur þú valið hversu marga dögum fyrir check-in, ferðaskrifstofan fær ábendingu frá Travia um að senda þér nafnalista yfir alla gesti í bókunni. 


10. Í Invite message getur þú skrifað skilaboð til ferðaskrifstofunnar sem fylgir með samstarfsbeiðninni.


11. Ef þú hefur valið nokkrar ferðaskrifstofur sem þú ætlar að senda á í einu, en vilt ekki hafa sömu stillingar fyrir alla, getur þú smellt á Customize flipann. 



Þegar þú hefur sent samstarfsbeiðni á ferðaskrifstofu, sendir Travia tölvupóst á ferðskrifstofuna.  Þegar ferðaskrifstofa er búin að samþykkja samstarfsbeiðni frá þér, getur hún bókað hjá þér í gegnum Travia undir þeim skilyrðum sem eru í samstarfssamningum ykkar á milli. 



Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina